Umsögn um bókin Kynlíf -heilbrigði, ást og erótík

Umsagnir um bókina í heild og einstaka kafla hennar:

„Í bók Jónu Ingibjargar Kynlíf – heilbrigði, ást  og erótík er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, eins og með því að takmarka verkefnið við eitthvert afmarkað svið kynfræðanna, heldur er hér komið fram víðfeðmt rit: handbók og lesefni fyrir nemendur og fagfólk á sviði heilbrigðis-, uppeldis- og félagsþjónustu, en jafnframt fræðslurit fyrir almenning. Þetta er fyrsta fagritið á íslensku af þessu tagi og er mikill fengur að slíku verki. Hinir 13 yfirgripsmiklu kaflar bókarinnar eiga það allir sammerkt að byggjast talsvert á fræðilegu efni og tengingu við rannsóknir á viðkomandi sviði- og miðla þannig gildri þekkingu sem handbók.

Það er einkum tvennt annað sem í senn auðgar framsetningu og gerir bókina aðgengilega og skemmtilega aflestrar. Annað er gnótt af  lifandi dæmum, þar sem reynsla og skilningur höfundar nýtur sín vel, og þetta, sem er auðlind fagmannsins, skilar lesandanum því sem einvíður fræðimaður aldrei nær að gera. Hitt er hinn gagnrýni, hvetjandi tónn hvað varðar þekkingu eða öllu heldur þekkingarskort og hleypidóma í kynlífsmálefnum. Þannig er textinn svo vekjandi að maður fer að iða í skinninu eftir því að afla meiri þekkingar, skilgreina rannsóknarverkefni – og skrifa“!

-Sigrún Júlíusdóttir,  prófessor.

 

„Nýlega kom út bók eftir Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur,hjúkrunarfræðing, kynfræðing og sérfræðing í klínískri kynfræði, en þau fræði fjalla um greiningu og meðferð kynlífsvandamála. Bókin ber heitið Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík.

Jóna Ingibjörg er brautryðjandi á þessu sviði hér á landi eins og alkunna er. Snemma á ferli sínum starfaði hún hjá Landlæknisembættinu og vann þá m. a. að viðamestu könnun sem gerð hefur verið hér á landi á kynhegðun Íslendinga. Niðurstöður þeirrar könnunar komu út hjá embættinu í tveimur skýrslum árin 1994 og 1998.

Hin nýja bók Jónu Ingibjargar er ætluð almenningi og fagfólki í heilbrigðis- og umönnunarstéttum. Bókin skiptist í 13 kafla og fjallar einn þeirra sérstaklega um heilbrigðisstarfsfólk, hlutverk þess og þjálfun.

 

Bókin er hin fróðlegasta og skrifuð á máli sem allir skilja. Jóna Ingibjörg tileinkar bókina ömmu sinni og alnöfnu sem lést árið 1992.“

-Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir og fyrrv. landlæknir

Umsögn Matthíasar má sjá á vef Landlæknisembættisins.

 

„Kaflinn Kynverund barna er skrifaður af raunsæi og þekkingu. Farið er með viðkvæmt efni af einstakri alúð og virðingu“.

-Jóhanna Ragnarsdóttir leikskólakennari

 

„Jóna Ingibjörg tekur saman yfirgripsmikið svið kynfræðinnar í bók sinni Kynlíf -heilbrigði, ást og erótík og kynnir lesandanum fyrir krókum og kimum kynlífsins með stuðningi nýjustu rannsókna. Hvert málefni er vel kynnt en jafnframt aðgengilegt og því má í raun lesa bókina spjaldanna á milli en einnig nýta sem uppflettirit. Kynfræði er margþætt fag og því einkar kærkomið að fá vel skrifaða fræðibók á íslensku, skrifuð af Íslendingi, um fræðin. Þessi bók á fullt erindi sem fræðslurit, hvort sem það er fyrir áhugamann eða sérfræðing, um kynverund einstaklinga.“

-Sigríður Dögg Arnardóttir, nemi í kynfræði.