Kynstrin öll – nýtt og öðruvísi spurningaspil

18. nóvember 2010 Um miðjan desember kemur í verslanir nýtt og öðruvísi spurningaspil. Spilið vekur fjörugar umræður meðal leikmanna um allt milli himins og jarðar í sambandi við samskipti kynjanna og kynferðismál. Skemmtilegur fróðleikur um málefni sem allir ættu að vita kryddar spilið.

Jóna Ingibjörg Jónsdóttir hjúkrunar-og kynfræðingur er hugmyndasmiður spilsins en Finnur Jóhannsson Malmquist grafískur hönnuður á heiðurinn af útliti.

Sjá nánar á vefsíðu spilsins og facebook síðu. Hægt er að komast í lukkupottinn á facebook en dregið verður úr nöfnum þriggja heppinna einstaklinga þann 22. des. n.k. sem hljóta spilið í verðlaun.

KO_MG_6753-300x235