Þann 1. janúar s.l. hófst tveggja ára verkefni á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Markmiðið er tvíþætt: bjóða krabbameinsgreindum einstaklingum og aðstandendum ókeypis kynlífsráðgjöf og þjálfa og fræða starfsfólk svo það verði öruggara í að ræða um kynferðismál við sjúklinga.
Ég hef verið ráðin starfsmaður verkefnisins.
Á föstudaginn verður boðið upp á fyrirlestur og vinnusmiðju.
