Partýspilið Kynstrin öll slær í gegn hjá Ástráði

Ástráður, félag forvarnanema, eitt af mörgum félagasamtökum sem uppgötvað hefur spilið Kynstrin öll, hefur þetta um spilið að segja:

Kynstrin öll er spil sem gaman er að og kemur skemmtilega á óvart.

Fátt er jafnmikilvægur né jafnumtalaður þáttur í lífi mannsins og kynlífið og hefur Jónu Ingibjörgu Jónsdóttir, kynfræðingi, með sanni tekist að skapa spil sem hentar jafnt ungum sem öldnum um það málefni.

Ástráður hefur nú í áratug sinnt kynfræðslu ungmenna á Íslandi og haft það að markmiði að koma á framfæri upplýsingum og vekja umræður meðal ungs fólks um kynheilbrigði.

Kynstrin öll er tilvalið spil til að bæta samskipti og efla umræðu meðal unglinga og einnig á milli unglinga og foreldra. Spilið tengir á skemmtilegan hátt allt milli himins og jarðar sem kemur að almennum kynferðismálum.

Spilið er hreint ekki vandræðalegt þar sem það byggist ekki á því að fólk segi frá eigin kynlífsreynslu heldur ræði um kynlíf almennt, hvað getur verið skemmtilegra en það!

Spilið er spurningaspil með fimm flokkum; menning, sambönd, kynhegðun, líkaminn og taka sénsinn og oftast er stutt í hláturinn í hverjum flokki. Spilið er fjölfræðilegur upplýsingabanki sem vekur upp skemmtilegar og forvitnilegar umræður jafnt sem rökræður.

Ástráður hvetur alla til að kynna sér Kynstrin öll. Hér er á ferðinni spil sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara enda er spilið hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi.

Ástráður hélt spilakvöld fyrr á árinu og hér má sjá dæmi um það sem læknanemar höfðu um spilið að segja:

,,Skemmtilegt og fræðandi spil fyrir ungt fólk á öllum aldri”

„Kynstrin öll er alveg frábært spil! Það er skemmtilegt, fræðandi og býður upp á fjörugar umræður – allt í senn. Spilið er líka svo nýtt og ferskt, öðruvísi en öll hin spilin. Við hlógum mikið og skemmtum okkur konunglega!“

„Það sem kom mér mest á óvart var hvað spilið skapaði góðan anda fyrir opna og jákvæða umræðu um kynlíf.“

,,Spilið var skemmtilegt og öðruvísi, á góðan hátt. Ég myndi segja að þetta væri í raun fyrir alla, kannski aðallega ungt fólk og örugglega mjög sniðugt fyrir unglinga, til að minnka fordóma og auka skilning á þessu „tabú“ máli.”

,,Kynstrin öll er umfram allt skemmtilegt spil, sem fjallar um kynlíf á heilbrigðan hátt.”

,,Kynstrin öll kom mér virkilega á óvart. Ég hef sjaldan haft jafn gaman af borðspili. Spilið vakti skemmtilegar umræður og það var mikið hlegið í hópnum.”

Ástráður