Kynverund barna og unglinga á fræðadögum Heilsugæslunnar

Fræðadagar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðinsins eru haldnir árlega.

Í haust verður m.a. þemadagskrá um kynverund barna og unglinga.

Jóna Ingibjörg Jónsdóttir er fundarstjóri og flytur að auki tvö erindi: eitt sem ber heitið „Heilbrigður kynferðisþroski barna og unglinga“ og annað sem fjallar um ákveðna aðferð við að ræða og meta kynhegðun meðal barna og unglinga.