Jóna Ingibjörg

Jóna Ingibjörg

Þetta svið mannlegrar tilveru – kynverund mannsins – er bæði áhugavert, ögrandi og umdeilt. Sem sagt afar verðugt faglegt viðfangsefni og snemma tók ég stefnuna á að vinna á þeim starfsvettvangi, eða við kynfræði (sexology).

Ég hef margra ára reynslu af kennslu, ráðgjöf og rannsóknum í kynfræðum. Til dæmis var ég aðalskipuleggjandi og umsjónarmaður fyrstu könnunar á kynhegðun sem gerð var meðal íslensku þjóðarinnar árið 1992.

Eftir nám í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands lauk ég árið 1988 meistaraprófi í menntunarfræðum á sviði kynfræðslu (sexuality education). Human sexuality education námið stundaði ég í Graduate School of Education við University of Pennsylvania.

Árið 2001 lauk ég viðbótarnámi í samtalsmeðferð (psykoterapi) frá Grábræðrastofnuninni í Danmörku og árið 2006 hlaut, fyrst Íslendinga, sérfræðiviðurkenningu í klinískri kynfræði frá Samtökum norrænna kynfræðifélaga (Nordic Association for Clinical Sexology; NACS).

Árið 2008 stofnaði ég fyrirtækið Kynstur ráðgjafastofa og starfa sjálfstætt við kynlífsráðgjöf, almenningsfræðslu og kennslu á sviði kynfræða (kynfræðiskólinn).

Nýtt nám í kynfræði á háskólastigi hófst árið 2010. Ég var hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi.

Starfa á barna-og unglingageðdeild LSH og við kynfræðistörf á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og á eigin stofu.

Formaður Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir (FKB) 2010-2011.

Formaður Kynfræðifélags Íslands 1993-1996 og 2004-2008. Meðstjórnandi 2008-2010.

Hef bloggað síðan 2006, núna á Eyjunni.

Ég er höfundur bókarinnar Kynlíf – heilbrigði, ást og erótík, fræðiriti um mannlega kynverund. Ennfremur er ég höfundur og útgefandi spurninga-og partýspilsins Kynstrin öll.

Ég er gift Þóri Jóhannssyni, tónlistarmanni, og á tvö börn.