Sex dagar!

19. október 2010 SEX DAGAR eru haldnir í fyrsta skipti í tilefni þess að formlegt nám í kynfræði er nú í boði á Íslandi. Kynfræðifélag Íslands hafði frumkvæði að boðið var upp á nám í kynfræði við Háskóla Íslands.

sexdagar.jgp

Kynverund mannsins á RIFF

24. september 2010 Kvikmyndahátíðin RIFF hófst í gær. Þar má finna margar áhugaverðar kvikmyndir. Rósa María Sólveigardóttir Óskarsdóttir hefur tekið saman yfirlit yfir myndir sem fjalla með einum eða  öðrum hætti um kynverund mannsins.

symbol5

Ólík kynlöngun er óhjákvæmileg

25. ágúst 2010 Ólík kynlöngun er óhjákvæmileg. Þegar um tvo ólíka einstaklinga er að ræða er óhjákvæmilegt að þeir hafi mismikla löngun til kynlífs.

Það er eðlilegt að vilja ekki eða kæra sig ekki um kynlíf, og fyrir því geta legið margar réttmætar eða skiljanlegar ástæður. Ólík kynlöngun er því ekki vandamál í sjálfu sér. en þegar parið nær ekki að höndla eðlilegt misræmi í þessum efnum með ásættanlegum hætti er líklegt að upp komi togstreita og vanlíðan í sambandinu. Þess ber að geta að þótt misræmi í kynlöngun hafi áhrif á elskendurna þá segir það fátt um ágæti sambandsins eða hve vel parinu vegnar yfirleitt. leiipar

Fræðsla fyrir læknanema í Ástráði

23. ágúst 2010 Fræðsla forvarnasamtaka læknanema, Ástráðs, nær til fyrstu bekkja allra framhaldsskóla á landinu, auk grunnskóla og félagsmiðstöðva. Í forvarnastarfinu er fjallað um kynheilbrigði. Leitað hefur verið til Kynstur ráðgjafastofu um að koma að svonefndum fræðsludögum en þá undirbúa læknanemarnir sig fyrir forvarnastarfið og afla sér ýmislegs fróðleiks hjá sérfræðingum.

Ánægja í kynlífi styrkir konur

19. ágúst 2010

Plaisirs-davant-diapoRakst á grein í nettímariti sem ég verð að deila með ykkur. Greinin heitir „Sexual pleasures empower women“ og fjallar um að kynferðisleg ánægja eflir konur. Orðræða samtímans er oft svo gegnumsýrð af umfjöllun um konur sem fórnarlömb eða þolendur að þessi jákvæða og sterka hlið vill gleymast. Það er hægt að vinna að því að útrýma óréttlæti, kúgun og ofbeldi en það má líka hugsa um hvað hægt er að stefna að.

Ein hjúskaparlög fyrir alla

26. júní 2010  Á morgunn, 27. júní, taka gildi ný hjúskaparlög sem kveða á um ein hjúskaparlög fyrir alla. Tveir einstaklingar (óháð kynferði) mega stofna til hjúskapar. Þetta er sannkallaður gleðidagur. Samkynhneigðir og ástvinir þeirra fagna og kirkjunnar fólk sem hefur hjartað á réttum stað.

Það kætir mig einnig að biskupinn hafi beðist fyrirgefningar á þeim orðum sínum að ef hjónaband yrði hjónabandið ekki lengur skilgreint sem samband karls og konu, yrði því kastað á sorphauginn.

onemarriagelaw

Þverfræðilegt háskólanám í kynfræði hefst í haust

29. maí 2010 Nýtt þverfræðilegt nám í kynfræði (sexology) á meistarastigi hefst haustið 2011.

Árið 2004 átti ég, sem þáverandi formaður Kynfræðifélags Íslands, frumkvæði að því hefja undirbúning að kynfræðinámi á háskólastigi. Stjórn Kynfræðifélagsins skipaði námsnefnd árið 2005 sem stefndi að inntöku fyrstu nemanna haustið 2009 við Háskóla Íslands.

Þau áform komust í uppnám á haustdögum 2008 vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu, og óvíst var hve lengi þurfti að bíða þess að heildstætt kynfræðinám yrði að veruleika á Íslandi. Nú hefur ræst úr og kynfræðinámið hefst næsta haust.

Námið í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands.

Kennd verða þrjú námskeið í kynfræðináminu. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.

Hreinasta tungumálið er líkamsmálið.

27. maí 2010 Hreinasta tungumálið er líkamsmálið.

bræður

Ég fann G-blettinn

26. maí 2010 Ég fann G-blettinn.

Great Global Kiss-In

12. maí 2010

Blásið er til Great Global Kiss-In atburðar í Reykjavík mánudaginn 17. maí 2010 kl. 16:00 – 17:00 á Austurvelli, Reykjavík.

lesbianlove17. maí er alþjóðlegur dagur gegn homma-og transfóbíu,  þ.e. fordómum og hræðslu gagnvart samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki. Af því tilefni ætlar hópur fólks að hittast á Austurvelli og kyssast gegn fordómum.

Enn þann dag í dag veigra pör úr röðum hinsegin fólk sér við að kyssast á almannafæri. Eitthvað sem streit pörum þykir sjálfssagt að gera og velta ekki mikið fyrir sér.