Ein hjúskaparlög fyrir alla

26. júní 2010  Á morgunn, 27. júní, taka gildi ný hjúskaparlög sem kveða á um ein hjúskaparlög fyrir alla. Tveir einstaklingar (óháð kynferði) mega stofna til hjúskapar. Þetta er sannkallaður gleðidagur. Samkynhneigðir og ástvinir þeirra fagna og kirkjunnar fólk sem hefur hjartað á réttum stað.

Það kætir mig einnig að biskupinn hafi beðist fyrirgefningar á þeim orðum sínum að ef hjónaband yrði hjónabandið ekki lengur skilgreint sem samband karls og konu, yrði því kastað á sorphauginn.

onemarriagelaw

Þverfræðilegt háskólanám í kynfræði hefst í haust

29. maí 2010 Nýtt þverfræðilegt nám í kynfræði (sexology) á meistarastigi hefst haustið 2011.

Árið 2004 átti ég, sem þáverandi formaður Kynfræðifélags Íslands, frumkvæði að því hefja undirbúning að kynfræðinámi á háskólastigi. Stjórn Kynfræðifélagsins skipaði námsnefnd árið 2005 sem stefndi að inntöku fyrstu nemanna haustið 2009 við Háskóla Íslands.

Þau áform komust í uppnám á haustdögum 2008 vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu, og óvíst var hve lengi þurfti að bíða þess að heildstætt kynfræðinám yrði að veruleika á Íslandi. Nú hefur ræst úr og kynfræðinámið hefst næsta haust.

Námið í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands.

Kennd verða þrjú námskeið í kynfræðináminu. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.

Hreinasta tungumálið er líkamsmálið.

27. maí 2010 Hreinasta tungumálið er líkamsmálið.

bræður

Ég fann G-blettinn

26. maí 2010 Ég fann G-blettinn.

Great Global Kiss-In

12. maí 2010

Blásið er til Great Global Kiss-In atburðar í Reykjavík mánudaginn 17. maí 2010 kl. 16:00 – 17:00 á Austurvelli, Reykjavík.

lesbianlove17. maí er alþjóðlegur dagur gegn homma-og transfóbíu,  þ.e. fordómum og hræðslu gagnvart samkynhneigðum, tvíkynhneigðum og transfólki. Af því tilefni ætlar hópur fólks að hittast á Austurvelli og kyssast gegn fordómum.

Enn þann dag í dag veigra pör úr röðum hinsegin fólk sér við að kyssast á almannafæri. Eitthvað sem streit pörum þykir sjálfssagt að gera og velta ekki mikið fyrir sér.

 

Fræðsla fyrir lækna á Reykjalundi

29. apríl 2010

Í gær flutti ég fyrirlestur fyrir lækna á Reykjalundi sem bar yfirskriftina Kynlífsvandi og meðferð.

Fyrirlesturinn fjallaði um efni, að beiðni þeirra sjálfra um þrennt: Hvað er eðlilegt kynlíf? Hver eru helstu kynlífsvandamál og úrlausnir? Efnið er ansi viðamikið og eitthvað sem kennt er á margra vikna námskeiðum meðal fagfólks en ég reyndi að gera því skil eftir minni bestu getu.

Í lokin spunnust ágætar umræður  og eru læknar á Reykjalundi vel meðvitaðir um að kynlíf er einn þáttur lífsgæða og að langvinnir sjúkdómar geta raskað getu fólks í þeim efnum. Jafnframt töldu þeir að þessum þætti væri þó ekki sinnt með nægilega markvissum hætti t.d. í sjúklingafræðslu og ráðgjöf.

Stofuviðtöl

26. apríl 2010

Á vorin hleypur venjulega kippur í bókanir í kynlífsráðgjöf og stundum komast færri að en vilja. Ég kann enga skýringu á hvers vegna oft er vinsælla að koma í ráðgjöf á vorin en aðra tíma ársins. Kannski hefur það eitthvað með sumarið að gera og væntingar fólks á þeim árstíma.

En af þessu tilefni vil ég upplýsa að Kynstur ráðgjafastofa verður lokuð frá 1. júlí -15. ágúst n.k. svo best er að panta viðtöl fyrir þann tíma. Stofuviðtöl hefjast svo að nýju upp úr miðjum ágúst.

Er rangt að nota líffæri í kynferðislegum tilgangi?

25. apríl 2010 Er rangt að nota líffæri í kynferðislegum tilgangi?

Oft vefst fyrir fólki að skilgreina eðlilega kynhegðun. Í bókinni minni Kynlíf- heilbrigði ást og erótík fer ég nokkuð ítarlega í þá sálma í fimmta kafla um margvíslega kynhegðun.

Margvísleg viðmið eru til um hvað telst eðileg kynhegðun. Til dæmis telja sumir að einungis kynhegðun sem hefur æxlun í för með sér sé „eðlilegt kynlíf“.

Nátengt æxlunarsjónarmiðinu er sú hugmynd að ef líffæri hafa ákveðinn tilgang, sé rangt að nota þau í öðrum tilgangi. Slíkt sjónarmið mætti greina hjá manneskju sem segði að fyrst endaþarmurinn gegni fyrst og fremst því hlutverki að láta frá sér melta fæðu þá sé ónáttúrulegt eða rangt að nota hann í kynferðislegum tilgangi.

Með sömu rökum mætti fordæma eða banna kossa af því að munnholið er fyrst og fremst notað til að neyta fæðu og draga súrefni ofan í lungun.

Í reynd er lítil stoð í þessum sjónarmiðum. Vefir í endaþarmi eru fósturfræðilega af sama meiði og kynfærin. Það liggur því í augum uppi að erting í endaþarm getur virkað kynferðislega örvandi. Hvort sú er raunin fer auðvitað síðan eftir mörgu, ekki síst þekkingu fólks og viðhorfum.

Nordiske kvinder ljósmyndaverkefni

26. mars 2010 Danskur ljósmyndari, Søren Rønholt, er að vinna að verkefni sem hann nefnir norrænar konur. Þetta er athyglisvert verkefni sem hefur það að markmiði að hafna fótosjopp útlitinu, þröngri líkamsímynd og sýna þess í stað raunverulega líkama kvenna. Nánari upplýsingar er að finna á Facebook undir Nordiske kvinder en verið er að leita að íslenskum konum til þáttöku. Hér má lesa um verkefnið á ensku:

Northern Truth is a project to capture and investigate the true beauty of the Northern people. It is a documentary through photo portraits of Northern women, photographed naked in their home bound surroundings. 10 women from each of the Nordic countries ( Denmark, Norway, Sweden, Finland and Iceland ) will be participating. All different in age, backgrounds and with various lifestyles. The investigation will result in exhibitions in each of the 5 countries, as well as be documented into the book “ The Northern Truth“.

The photographer of the project, Søren Rønholt, has through his many years, as a fashion photographer, repeatedly heard the demand for the so called „perfect body“ and a „perfect look“ by the advertising industry. Fashionably and preferable, pictures of very young and high styled teenage girls with a Northern look. A demand that produces images that are unobtainable and only created by computer magic. Images that sell us the idea of a fake and unrealistic body ideal, while pushing empty wishes for an eternal youth. Illusions that are only producing loathing and a fear of the natural body, despite its’ complete perfection by nature. A paradox, which Søren Rønholt, due to his line of work, is a participant of, but wants to question and wants to re-open our eyes to our true beauty.

The ‘Northern Truth’ project will open our eyes to our perception of beauty and rediscover the true perfection, unrendered and honestly magical. Through each participant, capture and complete the picture of the genuine, the unique and the natural beauty of the Northern woman – not the dictation of a commercialized version of who and how we are supposed to look.

To see more about the previous work of photographer Søren Rønholt – please look at website : www.roenholt.dk

Hinsegin helgi fyrir ungt fólk

hha4111. mars 2010

Q-Félag hinsegin stúdenta við Háskóla Íslands býður ungu hinsegin fólki á aldrinum 16-25 að koma á Hinsegin helgi í apríl. Nánari upplýsingar er að finna hér.