Skriflegar fyrirspurnir kosta 4.300 kr.
Ef þú vilt senda mér skriflega fyrirspurn og óska eftir svari frá mér vinsamlegast lestu þá eftirfarandi leiðbeiningar:
Fyrst þarftu að lýsa vandanum eins vel fyrir mér og þú getur. Allar upplýsingar sem málið varða eru mikilvægar.
Ef þú svarar a.m.k. eftirfarandi spurningum og lætur þær upplýsingar fylgja í fyrirspurninni færðu ítarlegra svar frá mér:
A. Hver er vandinn? Hvert er áhyggjuefnið? Hvernig og hvenær byrjaði vandinn?
Hvaða áhrif hefur vandinn á þína/ykkar líðan, samband, annað?
Hvað hafið þið sjálf gert til að leysa málið? Hvað hefur virkað og hvað ekki?
Hvað er mikilvægast í sambandi við hverju þið viljið breyta? Hvað viljið þið sjá gerast?
B. Fyrirspurnin sendist síðan til mín á jona@kynstur.is
C. Því næst þarf að ganga frá greiðslu, kr. 4.300, í heimabanka.
Bankaupplýsingar
Reikningsnúmer 0313-26-009736 (verður líka að skrifa núllin)
Kt. 271060-3359
Þegar skrifleg fyrirspurn og greiðsla hefur borist mun ég svara ykkur eftir bestu getu og svarið ætti að berast þér/ykkur innan tveggja virkra daga.
