Um Kynstur

KYNSTUR RÁÐGJAFASTOFA er þjónustufyrirtæki Jónu Ingibjargar Jónsdóttir á sviði kynheilbrigðis. Starfssemin er þríþætt:

1. Kynlífsráðgjöf ; sérhæfð samtalsmeðferð/sambandsráðgjöf, fyrir pör og einstaklinga.

2. Fyrirlestrar um kynverund mannsins (human sexuality) fyrir einstaklinga, pör, félagasamtök, klúbba og starfsmannafélög.

3. Kennsla og þjálfun í kynfræði fyrir fagfólk í heilbrigðis-og uppeldisstéttum.

MERKIÐ

Merki, eða lógó, Kynstur sýnir hjarta og sæðisfrumu. Hugmyndina að merkinu fékk ég fyrir mörgum árum og Helgi Sigurðsson teiknari útfærði merkið fyrir mig.

logó

Kynverund mannsins er farvegur fyrir nýtt líf (sæðið) og myndun og viðhald nýrra parsambanda (hjartað – kærleikurinn). Lógó Kynsturs sýnir því bæði tilfinningalegar og líkamlegar hliðar kynverundar.

Merkið minnir á yin og yang úr kínverskri heimspeki. Yin og Yang tilvísunin undirstrikar að kynverund mannsins er síkvikt og breytilegt afl, allt frá fæðingu til dauða. Kynverund fólks ræðst af samspili ýmis konar hvort sem það eru náin samskipti para af sama eða gagnstæðu kyni, samband hugar og líkama eða einstaklinga og samfélags. Hver hluti er í stöðugum tengslum við hinn og myndar heild.

HVAÐ ÞÝÐIR ORÐIÐ KYNSTUR?

Kynstur þýðir auðæfi, býsn, gnótt, undur, fjöldi.

Nafnið Kynstur hentar vel sem heiti á þjónustu sem hefur það að markmiði að styrkja auðæfin fyrir fólk og lífið sjálft; það er að segja kynverund mannsins. Kynstur er nafnorð, hvorugkyn og fleirtöluorð og beygist á eftirfarandi hátt:

Fleirtala, án greinis

  • kynstur
  • kynstur
  • kynstrum
  • kynstra

Fleirtala, með greini

  • kynstrin
  • kynstrin
  • kynstrunum
  • kynstranna